Erlent

Kim vill standa við samninginn

Leiðtogi Norður-Kóreu tekur í höndina á aðstoðarutanríkisráðherra Kína, Yang Jiechi, eftir fund þeirra í gær.
Leiðtogi Norður-Kóreu tekur í höndina á aðstoðarutanríkisráðherra Kína, Yang Jiechi, eftir fund þeirra í gær. MYND/AP

Kim Jong Il, einræðisherra Norður-Kóreu, sagði í gær að ríkin sem vilja að yfirvöld í landinu hætti við kjarnorkuáætlanir sínar eigi að standa við eigin skuldbindingar í afvopnunarsamningnum sem gerður var í febrúar. Kim sagði þetta á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Kína, Yang Jiechi, í gær, að því er kínverskir fjölmiðlar greindu frá.

Í samningnum kemur fram að Norður-Kórea eigi að loka stærsta kjarnakljúfi sínum og fá margháttaða aðstoð í staðinn. Orð Kims koma í kjölfar þess að í síðustu viku leystist loks deila um fé Norður-Kóreustjórnar sem fryst hafði verið á erlendum bankareikningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×