Erlent

Ummæli um árásir gagnrýnd

KYUMA sést hér taka við mótmælabréfi frá Tomihisa Taue, borgarstjóra Nagasakí, vegna ummæla sinna.
KYUMA sést hér taka við mótmælabréfi frá Tomihisa Taue, borgarstjóra Nagasakí, vegna ummæla sinna. MYND/AP

 Varnarmálaráðherra Japans, Fumio Kyuma, sagði af sér í gær vegna ummæla sem hann lét falla um að kjarnorkuárásir Bandaríkjamanna á Hírósíma og Nagasakí árið 1945 hefðu verið óumflýjanleg leið til að binda endi á stríðið.

Ummæli Kyumas voru gagnrýnd harðlega í landinu því margir líta svo á að kjarnorkuárásirnar hafi verið óréttlætanleg slátrun á óbreyttum borgurum.

Þjóðaröryggisráðgjafi japönsku ríkisstjórnarinnar, Yuriko Koike, tekur við embætti varnarmálaráðherra af Kyuma. Hún er fyrsta konan sem gegnir embættinu í Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×