Erlent

Innflytjendastefna Bush felld

Öldungadeild Bandaríkjaþings felldi fyrir helgi frumvarp ríkisstjórnar George W. Bush Bandaríkjaforseta að hertri löggjöf um innflytjendur. Fjórtán atkvæði vantaði upp á að frumvarpið yrði að lögum.

Í frumvarpinu er lagt til að landamæragæsla verði hert og markvissum aðgerðum beitt til að fækka ólöglegum innflytjendum á vinnustöðum. Milljónir ólöglegra innflytjenda hefðu fengið lagaleg réttindi með því að snúa stuttlega aftur til heimalandsins.

Bush var vonsvikinn að lokinni atkvæðagreiðslu, en frumvarpið átti stuðningsmenn og andmælendur bæði meðal demókrata og repúblikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×