Floti F-14 orrustuþotna molaður í brotajárn 4. júlí 2007 03:30 Floti F-14-þotna á herflugvelli í Tucson í Arizona, þar sem þær bíða eyðingar. F-14-þotur gerðu áður garðinn frægan m.a. með því að leika aðalhlutverk í Hollywood-myndinni Top Gun. MYND/AP
Þegar F-14 Tomcat-orrustuþotan var fyrst tekin í notkun snemma á áttunda áratugnum kostaði stykkið 38 milljónir dollara og var tákn um hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna í lofti. Bandaríkjaher lagði síðustu slíku vélunum sem hann hafði í þjónustu sinni síðastliðið haust. Og nú er verið að mola þær í brotajárn til að hindra að varahlutir lendi í röngum höndum. Eftir að það fregnaðist í byrjun þessa árs að varahlutir í F-14-þotur bærust frá Bandaríkjunum í hendur Írana og fleiri þjóða sem bandarísk yfirvöld hafa lagt bann við hergagnasölu til, brá bandaríska varnarmálaráðuneytið á það ráð að banna alla sölu á slíkum varahlutum. Til að tryggja það bann enn betur er nú verið að klippa vélarnar sem eftir eru, í flugvélakirkjugarði Bandaríkjahers í Tucson í Arizona, niður í smábita. Íranar keyptu áttatíu F-14-þotur á áttunda áratugnum, þegar landið var enn bandamaður Bandaríkjanna. Klerkastjórnin, sem tók við völdum í Teheran árið 1979, reynir enn að halda flota F-14-þotna í flughæfu ástandi.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Sjá meira