David Platt: Kampavínsbolti Arsenal skilar ekki titlum 8. mars 2007 19:15 Arsenal verður að sýna meiri grimmd að mati fyrrum leikmanns liðsins, David Platt NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum landsliðsmaðurinn David Platt segir að þó Arsenal spili fallega og skemmtilega knattspyrnu, verði liðið að fórna hluta af þeirri stefnu sinni ef það ætli sér að vinna fleiri titla. Hann segir liðið líka skorta markaskorara við hlið Thierry Henry. Arsenal féll úr keppni í Meistaradeild Evrópu í gær þrátt fyrir yfirburði sína gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í báðum leikjum liðanna. David Platt gagnrýnir liðið í viðtali við Sky sjónvarpsstöðina. "Fólk hefur verið að tala um það lengi að vanti grimmd í lið Arsenal ef það á að ná betri árangri og ég get ekki ímyndað mér annað en að menn séu nú einnig að tala um það innan raða liðsins. Arsenal er ekki nógu grimmt lið og því er það ekki að vinna titla. Meira að segja hörðustu stuðningsmenn Manchester United og Chelsea viðurkenna að ef þeir ættu að setjast niður og horfa á skemmtilegan knattspyrnuleik - yrði Arsenal vafalaust fyrir valinu. Arsenal spilar mjög skemmtilega knattspyrnu - en það er ekki nóg til að vinna titla. Liðið er búið að tapa leikjum í deildinni í vetur vegna þessa sama vandamáls - liðið hefur ekki næga grimmd og sigurvilja og það er ekki nóg að fara inn í leiki með það fyrir augum að spila skemmtilegan fótbolta. Það er fínt að spila fallega, en maður verður fyrst og fremst að hugsa um að vinna - svo er hægt að fara að spila skemmtilega. Arsenal vantar hreinan markaskorara með Thierry Henry sem gefur liðinu 20-25 mörk á tímabili og er vægðarlaus fyrir framan markið. Liðið getur haldið áfram að spila kampavínsbolta en þá vinnur það heldur ekki marga titla," sagði Platt, sem var í liði Arsenal sem vann tvöfalt árið 1998. Hann segir að þó liðið þá hafi spilað fallegan bolta, hafði það lið líka haft þá hörku sem til þurfti til að skila titlum í hús.
Enski boltinn Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira