Erlent

Kæra ríkið til Strassborgar

Norsku „stríðsbörnin“, en það eru börn sem þýskir hermenn áttu með norskum konum á hernámsárunum í Noregi, hafa nú kært norska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu.

Þau krefjast skaðabóta og vilja einnig opinbera viðurkenningu á þjáningum sínum, en áratugum saman máttu þau þola mismunun og fordóma.

Norskir dómstólar hafa úrskurðað að ríkið beri enga ábyrgð á neinu sem gerðist fyrir 1952, þegar Noregur undirritaði Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Krafa þeirra nú er hins vegar byggð á því að mismununin hafi haldið áfram áratugum saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×