Erlent

Vill endurvekja traust fólksins

Gordon Brown
Gordon Brown

Gordon Brown, fjármálaráðherra og verðandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær myndu vinna að því að endurvekja traust fólksins á ríkisstjórninni þegar hann tæki við völdum. Hann nefndi engar breytingar á þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu.

„Þátttaka okkar í stríðinu hefur vissulega verið umdeild, en við verðum að gera okkur grein fyrir skyldum okkar gagnvart nýkjörinni Íraksstjórn,“ sagði hann á blaðamannafundi í gær.

Brown tekur við sæti forsætisráðherra af Tony Blair 27. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×