Erlent

ESB-aðild í forgang

Vojislav Kostunica forsætisráðherra Serbíu svarar spurningum blaðamanna strax eftir að hafa verið endurkjörinn í embætti.
Vojislav Kostunica forsætisráðherra Serbíu svarar spurningum blaðamanna strax eftir að hafa verið endurkjörinn í embætti. MYND/AFP

Ný ríkisstjórn Serbíu var samþykkt á serbneska þinginu aðeins nokkrum mínútum áður en lokafrestur rann út á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Fyrir hinni nýju ríkisstjórn liggur að reyna að ganga inn í Evrópusambandið á sama tíma og hún reynir að koma í veg fyrir að Kosovo-hérað öðlist sjálfstæði.

Olli Rehn, sem fer með málefni tengd stækkun ESB í framkvæmdastjórn þess, varð í gær fyrsti háttsetti erlendi erindrekinn til að hitta hina nýkjörnu ríkisstjórn. Rehn bauð fram stuðning ESB en sagði að Serbía þyrfti fyrst að sýna vilja til þess að handtaka flóttamenn sem hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi áður en forviðræður um aðild Serbíu að ESB gætu hafist.

Í fyrra frestaði ESB viðræðum við Serbíu vegna árangursleysis við slíkar handtökur, ekki síst á Ratko Mladic. Forseti Serbíu, Boris Tadic, sagði í gær að gripið yrði til sérstakra aðgerða til að hafa uppi á Mladic.

Utanríkisráðherra Serbíu, Vuc Jeremic, sagði í fyrradag að innganga ESB væri helsta forgangsatriði nýrrar stjórnar. Hann sagði að afstaða nýju stjórnarinnar gagnvart Kosovo væri sú sama og gömlu stjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×