Erlent

Vilja komast út úr ógöngunum

Paul Wolfowitz
Paul Wolfowitz

Bandarísk stjórnvöld viðurkenndu í gær að deilurnar um Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, hafi orðið bankanum til skaða og nú þurfi að finna leið út úr ógöngunum.

Tony Snow, blaðafulltrúi Hvíta hússins, ítrekaði stuðning Bandaríkjanna við Wolfowitz, en sagði jafnframt allt koma til greina svo að lausn megi fást, og útilokar þar með ekki lengur að Wolfowitz segi af sér.

Wolfowitz hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa brotið reglur bankans með því að veita ástkonu sinni bæði launa- og stöðuhækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×