Erlent

Belgískt barn í dái eftir árás

Bæjarstjóri í belgískum bæ hyggst láta banna hættulega hunda eftir að ungur drengur slasaðist alvarlega þegar hundur réðist á hann. Hundurinn beit drenginn sex sinnum í hálsinn og er drengurinn nú í dái.

Ekki var gerð nákvæm grein fyrir því hvernig banninu yrði háttað en fjölmiðlar sögðu að bæjarráðið myndi banna ákveðnar hundategundir og herða takmarkanir á fleiri hundategundum.

Frumvarp í svipuðum dúr bíður afgreiðslu á belgíska þinginu. Það sem af er árinu hafa að minnsta kosti sextán alvarleg tilvik orðið í landinu þar sem hundar hafa limlest börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×