Erlent

Kýpur og Malta nálgast aðild

Nýjustu aðildarríki ESB bætast smám saman í raðir evru-landa.
Nýjustu aðildarríki ESB bætast smám saman í raðir evru-landa.

Kýpur og Malta færðust í gær nær því að ganga til liðs við evrusvæðið er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Seðlabanki Evrópu lýstu stuðningi við aðildarumsóknir eyríkjanna tveggja, sem gengu í ESB fyrir þremur árum.

Löndin tvö verða 14. og 15. aðildarríki Efnahags- og myntbandalagsins um næstu áramót ef fjármálaráðherrar og leiðtogar ESB samþykkja aðildina á næstu tveimur mánuðum.

Aðeins eitt annað land af þeim tíu sem gengu í ESB í maí 2004 hefur þegar tekið upp evruna, en það gerði Slóvenía um síðustu áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×