Erlent

Einn æðsti talibaninn felldur

Lík Mulla Dadullah var til sýnis hjá héraðsstjóranum í Kandahar í gær.
Lík Mulla Dadullah var til sýnis hjá héraðsstjóranum í Kandahar í gær. MYND/AP

Hæst setti skæruliðaforingi talibana, Mulla Dadullah, féll um helgina í árás undir forystu bandarískra hermanna í Suður-Afganistan, að því er embættismenn upplýstu í gær.

Mulla Dadullah var aðal-„herforingi“ Mulla Omars, pólitísks leiðtoga talibana. Hann féll á laugardag í Helmand-héraði, að sögn Said Ansari, talsmanns leyniþjónustu Afganistansstjórnar. Í tilkynningu frá yfirstjórn NATO-herliðsins í Afganistan var andlát hans staðfest og fullyrt að það væri uppreisnarmönnum mikið áfall.

Dadullah er einn hæst setti forsprakki talibana sem drepinn hefur verið frá því ríkisstjórn talibana var bolað frá í innrás undir forystu Bandaríkjamanna í lok árs 2001.

„Mulla Dadullah var hryggjarstykki talibana,“ sagði Asadullah Khalid, héraðsstjóri Kandahar, sem áður fyrr var höfuðvígi talibana. „Hann var grimmur og hrottafenginn herstjóri sem drap og afhöfðaði óbreytta afganska borgara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×