Erlent

Upphafsreitur Bandaríkjanna

Bush í Jamestown. Bandaríkjaforseti brosti breitt er hann gekk um hina „gömlu Jamestown“ í gær.
Bush í Jamestown. Bandaríkjaforseti brosti breitt er hann gekk um hina „gömlu Jamestown“ í gær. MYND/ap

George W. Bush Bandaríkjaforseti fór í gær í pílagrímsför til Jamestown í Virginíu, fyrsta bæjarins sem Englendingar stofnuðu sem nýlendu í Vesturheimi, en þetta upphaf skipulegs landnáms Englendinga er almennt álitið upphafið að því sem síðar átti eftir að verða Bandaríkin. Rétt 400 ár eru í dag frá stofnun Jamestown.

Bush sagðist ánægður með að vera kominn „þangað sem þetta hófst allt“. Forsetinn ávarpaði síðan um 25.000 manns sem einnig voru mættir til bæjarins í tilefni af afmælinu. „Við vitum úr okkar eigin sögu að leiðin til lýðræðis er löng og ströng,“ sagði Bush í ræðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×