Enn fjöldamótmæli gegn Tyrklandsstjórn 14. maí 2007 05:15 Giskað var á að allt að ein og hálf milljón manna hefði tekið þátt í fundinum í Izmir. Margir veifuðu þjóðfánanum og myndum af Mustafa Kemal Atatürk. MYND/AP
Yfir ein milljón Tyrkja safnaðist saman í strandborginni Izmir (áður Smyrna), þriðju stærstu borg landsins, til að lýsa ugg um að ríkisstjórnarflokkurinn, sem á rætur í íslamskri hreyfingu, sé að leggja á ráðin um að troða trúarlegum gildum upp á þjóðfélagið. Þúsundir lögreglumanna reyndu að hafa stjórn á mannfjöldanum, daginn eftir að sprengja sprakk á útimarkaði í borginni sem varð einum manni að bana og særði fjórtán. Enginn lýsti yfir ábyrgð á árásinni, og engar vísbendingar voru um að hún tengdist mótmælafundinum. Izmir er hafnarborg við Eyjahaf og er mikið vígi þeirra sem vilja standa vörð um strangan aðskilnað trúar og stjórnmála, í anda Mustafa Kemal Atatürk, stofnanda tyrkneska lýðveldisins. Stjórnmálaflokkar með trúarleg tengsl eiga erfitt uppdráttar þar. Fjöldafundurinn í gær var skipulagður í því skyni að sýna mátt og megin veraldlega sinnaðra Tyrkja fyrir þingkosningar sem nú er áformað að halda þann 22. júlí. Sambærilegir fjöldafundir voru haldnir í Ankara og Istanbúl fyrir skemmstu. Að sögn fulltrúa úr hernum mætti ein og hálf milljón manna á fundinn í Izmir. Markmið fjöldafundanna er að setja þrýsting á ríkisstjórn Recep Tayyip Erdogan í kjölfar þess að hún tilnefndi utanríkisráðherrann Abdullah Gül, sem er trúaður múslimi og náinn pólitískur samherji Erdogans í Réttlætis- og þróunarflokknum (AKP), til embættis þingkjörins forseta lýðveldisins. Hin veraldlega sinnaða stjórnarandstaða og stór hluti almennings, eins og sjá má af mætingunni á fjöldafundina, reis upp á móti forsetaframboði Güls og hann dró það loks til baka. „Þessi fjöldamótmæli hafa gagnast til að þvinga stjórnina til að taka eitt skref afturábak,“ hefur AP eftir Neslihan Erkan, einum þátttakenda í mótmælunum í Izmir í gær. „Hættan er ekki liðin hjá. Þessir fjöldafundir verða að halda áfram uns hættunni hefur verið bægt frá.“ „Ég er hér til að verja land mitt,“ sagði annar mótmælandi, Yuksel Uysal. „Ég er hér til að verja byltingu Atatürks.“
Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Veður „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Innlent Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Innlent Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Innlent Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Fleiri fréttir Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Sjá meira