Framarar stálu stigi í lokin 14. maí 2007 12:00 Helgi Sigurðsson, markaskorari Valsmanna, hefur hér betur í baráttu við Framarana Reyni Leósson og Óðinn Árnason (til hægri) sem skoraði jöfnunarmarkið í seinni hálfleik. MYND/Daníel
Fyrsta mark Óðins Árnasonar í hans 85. leik í efstu deild tryggði Fram eitt stig á móti Val í fyrsta leik liðanna í Landsbankadeild karla í gær. Óðinn, sem spilar stöðu hægri bakvarðar, brá sér fram í aukaspyrnu mínútu fyrir leikslok og var réttur maður á réttum stað. Valsmenn, sem voru með frumkvæðið í leiknum, tókst ekki að bæta við sínu öðru marki eftir að Helgi Sigurðsson kom þeim í 1-0 á 15. mínútu og þurftu því að horfa á eftir stigunum í lokin. „Ég náði ekki einu sinni að skora fyrir Þór í 1. deildinni. Ég skoraði eitt í 2. deildinni en það var orðið mjög langt síðan. Það er gott start hjá manni í Fram," sagði hetja Framara, Óðinn Árnason, eftir leikinn. „Það var byrjendabragur á þessu hjá báðum liðum og það var ekki mikið verið að spila boltanum með jörðinni og þetta snerist meira um kýlingar og hlaup. Það voru allir liggjandi í vellinum með krampa í seinni hálfleiks. Ég var meira að segja búinn að kalla á Óla og segja að ég væri kominn með krampa líka en harkaði af mér sem betur fer," bætti Óðinn við en hann var ánægður með uppskeruna. „Það er mikilvægt að við náum að sýna andlegan styrk í fyrsta leik. Við erum undir megnið af leiknum á móti liði sem allir kalla meistarakandidata en við sýnum að við erum með öflugt lið og þó að við hittum ekki á okkar besta leik þá gefumst við ekki upp á móti neinum. Það mega allir búast við hörkuleik þegar þeir spila á móti okkur," sagði Óðinn að lokum. Það stefndi lengi vel í að örlögin sæju til þess að Helgi Sigurðsson skoraði sigurmarkið á móti sínum gömlu félögum. Markið skoraði Helgi á laglegan hátt eftir að hafa fengið góða sendingu frá Pálma Rafni Pálmasyni. Helgi fékk reyndar sams konar færi í seinni hálfleik en þá náði Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram að bjarga á laglegan hátt. Helgi var besti maður Vals ásamt Baldri Aðalsteinssyni en þeir áttu saman 10 af 19 markskotum Valsliðsins. Hjálmar Þórarinsson lífgaði mikið upp á sóknarleik Framara þegar hann kom inn á og fiskaði einmitt aukaspyrnuna sem jöfnunarmarkið kom upp úr. „Það er alltaf ömurlegt að sjá á eftir sigri í lokin en það er hætt við þessu þegar forustan er ekki meira en eitt mark. Það er langt síðan að maður hefur skorað og það ætlar að ganga hægt hjá mér að brjóta ísinn," sagði Valsmaðurinn Baldur Aðalsteinsson sem átti þrumuskot í slána fimm mínútum fyrir leikslok en mark þar hefði væntanlega gulltryggt sigur Vals. „Við vorum samt ekki komnir með neitt á meðan leikurinn er enn í gangi. Eitt stig er eitt stig og við þiggjum það. Það er gott að vera komnir með stig á töfluna því það er oft erfiðast að ná í fyrstu stigin," bætti Baldur við. Hann gerði sér grein fyrir því að leikurinn var ekki áhorfendavænn. „Þetta var barningsleikur og örugglega ekki mikið fyrir augað. Við erum með hörku fótboltalið en náðum ekki að sýna okkar bestu hliðar í dag. Það kemur bara í næsta leik," sagði Baldur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Ken Bates látinn Enski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira