Erlent

Ætlar til Íraks á næstu vikum

Gordon Brown Fjármálaráðherra Bretlands ætlar að taka við af Blair.
fréttablaðið/AP
Gordon Brown Fjármálaráðherra Bretlands ætlar að taka við af Blair. fréttablaðið/AP

„Ég ætla að reyna að koma til móts við væntingar fólks,“ sagði Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, þegar hann lýsti í gær yfir að hann sæktist eftir að taka við af Tony Blair sem leiðtogi Verkamannaflokksins og þá um leið sem forsætisráðherra Bretlands.

Hann sagði meðal annars að mistök hefðu verið gerð í Írak og sagðist ætla að fara til Íraks á næstu vikum. „Ég tel að á næstu mánuðum muni áherslurnar breytast.“

Brown hefur staðið í skugga Blairs síðastliðin tíu ár, en þykir næsta öruggur um að verða arftaki hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×