Á toppnum í 44 umferðir í röð 12. maí 2007 13:00 Emil Hallfreðsson kom FH á toppinn fyrir tæpum 34 mánuðum síðan og liðið hefur verið þar síðan. MYND/Stefán
Landsbankadeild karla í knattspyrnu hefst í dag með leik ÍA og FH á Akranesvelli. FH-ingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn þrjú ár í röð og eru farnir að nálgast met Skagamanna sem unnu titilinn fimm ár í röð frá 1992 til 1996. Allar spár knattspyrnuspekinga fyrir sumarið eru á einn veg, FH-ingar verða Íslandsmeistarar þrátt fyrir að lið eins og KR og Valur mæti mjög vel mönnuð til leiks og séu bjartsýn að geta náð Hafnfirðingum niður af toppnum. Yfirburðir FH-inga í Landsbankadeild karla undanfarin tvö tímabil hafa endurskrifað metaskrá deildarinnar og eitt glæsilegasta metið af þeim er seta liðsins í toppsæti deildarinnar. Síðustu 34 mánuði hefur engu liði tekist að koma Hafnarfjarðarliðinu af toppnum. FH hefur unnið fimm fyrstu leiki sína tvö síðustu tímabil og hafa gefið tóninn strax frá fyrsta leik. Síðan að Risinn vaknaði og komst á toppinn fyrir 34 mánuðum hefur FH-liðið unnið 32 leiki, aðeins tapað 4 leikjum og skorað 101 mark gegn aðeins 30. Alls hafa 104 stig komið í hús í Krikanum sem eru 35 fleiri stig en næsta lið, ÍA, hefur náð í á þessu tímabili. 18. júlí 2004 var sögulegur dagur fyrir Landsbankadeild karla því það var síðasti dagurinn sem eitthvað annað lið en FH sat í efsta sæti deildarinnar. FH-ingar unnu daginn eftur 1-0 sigur á Fylkismönnum á heimavelli sínum og liðin höfðu sætaskipti á toppnum. Það var Emil Hallfreðsson sem skoraði sigurmarkið í leiknum á 63. mínútu. FH-ingar komust þar í fyrsta sinn í efsta sæti deildarinnar síðan að liðið vann tvo fyrstu leiki sína sumarið 1995. Valsmenn hafa oftast verið í 2. sætinu á eftir FH-ingum þennan tíma eða alls eftir 21 af umferðunum 44. Valur var í 2. sæti í 17 umferðum af 18 sumarið 2005. Framarar eru eina liðið sem hefur komist með tærnar þar sem FH-ingar hafa haft hælana því þeir sátu við hlið FH í efsta sæti eftir fyrstu umferð deildarinnar 2005. FH vann þá 3-0 sigur á Keflavík en Fram vann á sama tíma 3-0 sigur á ÍBV. Það átti allt eftir að breytast því sautján umferðum munaði 31 stigi á liðunum, FH var orðið Íslandsmeistari en Fram fallið í 1. deild. Nú er að sjá hvort FH-ingar bæti enn við ótrúlegt met sitt eða hvort það sé komið að öðru liði að upplifa það að sitja í efsta sæti Landsbankadeildar karla.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Ken Bates látinn Enski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira