Erlent

Með spjald sem sagði þá þjófa

Tveir búðarhnuplarar fengu óvenjulegan dóm á dögunum fyrir að stela úr búðinni Wal-Mart í bænum Attalla í Alabama. Þeir voru dæmdir til að standa fyrir utan búðina í fjórar klukkustundir tvo laugardaga í röð með spjöld þar sem á stóð: „Ég er þjófur, ég stal úr Wal-Mart“, eða sitja að öðrum kosti í fangelsi í 60 daga.

Niel Hawkins, framkvæmdastjóri Wal-Mart í Attalla, var ánægður með niðurstöðu dómarans og sagði að nú myndi fólk kannski hugsa sig tvisvar um áður en það reyndi að stela úr búðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×