Erlent

Christian Klar ekki náðaður

Christian Klar Klar þykir ekki hafa sýnt mikil merki iðrunar.
Christian Klar Klar þykir ekki hafa sýnt mikil merki iðrunar. MYND/AP

Horst Köhler, forseti Þýskalands, hefur synjað náðunarbeiðni Christians Klar, fyrrverandi forsprakka hryðjuverkahópsins Rauðu herdeildarinnar. Klar er 54 ára og hefur setið í fangelsi í 24 ár. Hann var dæmdur í sexfalt lífstíðarfangelsi fyrir aðild að mörgum alræmdustu morðum samtakanna.

Fyrr á árinu var öðrum liðsmanni Rauðu herdeildarinnar, Birgitte Mohnhaupt, sleppt úr fangelsi. Köhler átti fund með Klar í síðustu viku og þótti það benda til þess að líklegt væri að hann fengi einnig náðun, en andstaða við það var hins vegar mikil. Köhler gaf ekki upp forsendu ákvörðunar sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×