Enginn komst lífs af 8. maí 2007 05:00 Björgunarsveitarmenn á vettvangi þar sem þotan hrapaði í fenjaskógi nærri Mange Pongo í Kamerún. MYND/AP
Enginn þeirra 114 manna sem voru í kenýsku farþegaþotunni sem hrapaði í skógi í Kamerún á föstudag komst lífs af. Þetta fullyrti Luc Ndjodo, fulltrúi þarlendra yfirvalda, eftir að hafa kannað vettvang slyssins. Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð neina á lífi. „Nei,“ svaraði hann. „Ég var þarna. Ég sá engan.“ Vélin lenti í mýrlendi og sökk að stórum hluta í forarbrúnt vatn. Brak úr vélinni dreifðist um stórt svæði. Verið er að undirbúa að dæla vatninu burt og er þannig vonast til að hægt verði að finna lík allra farþeganna. Mjög erfið skilyrði eru á svæðinu, þykkur skógur og tuttugu mínútna gangur þangað sem bílar komast næst. Því þarf að bera lík og líkamshluta á börum langa leið til að unnt sé að flytja látna í líkhús. Vélin var á leið frá Douala, höfuðborg Kamerún, til Naíróbí, höfuðborgar Kenýu, og hrapaði eftir einungis tuttugu kílómetra flug. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu, en bandarískur sérfræðingur í flugmálum segir að í ljósi þess hversu snemma eftir flugtak vélin hrapaði bendi allt til þess að um stórkostlega bilun í byggingu vélarinnar hafi verið að ræða.
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Innlent Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Sjá meira