Fylgi Sarkozys hefur vaxið 5. maí 2007 06:00 Nicolas Sarkozy Veifar til fylgismanna sinna á útifundi í gær.fréttablaðið/AP fréttablaðið/AP
Segolene Royal, forsetaframbjóðandi franskra sósíalista, varaði í gær við því að ofbeldi og uppþot gætu aukist í Frakklandi ef mótframbjóðandi hennar, hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy, sigrar í forsetakosningunum á morgun. „Það er hættulegt að kjósa Sarkozy. Ég vil ekki að Frakkland stefni í áttina að kerfishrottaskap,“ sagði hún í sjónvarpi í gærmorgun. Stuðningsmenn Sarkozy sögðu þetta síðasta útspil hennar ekki viðeigandi. Hins vegar býr franska lögreglan sig nú undir óeirðir í fátækrahverfum Parísar á sunnudagskvöldið, fari svo að Sarkozy beri sigur úr býtum. Sarkozy er fyrrverandi lögregluforingi og síðar innanríkisráðherra. Hann aflaði sér töluverðra óvinsælda meðal þeldökkra og arabískra ungmenna árið 2005 þegar hann, þá innanríkisráðherra, kallaði þá sem átt höfðu í útistöðum við lögreglu í fátækrahverfunum „úrþvætti“ og hét því að hreinsa þá burt með vatni úr háþrýstidælum. Þá um sumarið brutust út óeirðir í fátækrahverfum Parísar sem stóðu í þrjár vikur.Margir Frakkar eru á hinn bóginn mjög hrifnir af því hve Sarkozy tók á glæpum af mikilli hörku eftir að hann varð innanríkisráðherra árið 2002. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum fyrir kosningar, sem birtust í gær, hefur fylgi við Sarkozy vaxið á síðustu dögum og stefnir því allt í að hann verði næsti forseti Frakklands. Nýr forseti á að taka við fyrir 17. maí.
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Innlent Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Sjá meira