Erlent

Herská samtök boða afvopnun

Ólögleg samtök herskárra sambandssinna á Norður-Írlandi, Ulster Volunteer Force (UVF), sem um áratuga skeið stóðu að árásum á kaþólska, lýstu því yfir á fimmtudag að þau væru hætt vopnaðri baráttu og myndu afvopnast.

Gusty Spence, sem 73 ára að aldri er einn helsti talsmaður UVF, sagði á blaðamannafundi að samtökin myndu formlega hætta að vera til sem ólögleg baráttusamtök frá og með miðnætti á fimmtudag. Hin óvænta tilkynning kom fimm dögum áður en til stendur að mynda nýja samstjórn sambandssinna og kaþólskra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×