Erlent

Fyrsta skrefið í að fá fleiri fanga lausa

Varla er til sú palestínska fjölskylda sem ekki hefur átt einhvern ættingja í ísraelsku fangelsi.
Varla er til sú palestínska fjölskylda sem ekki hefur átt einhvern ættingja í ísraelsku fangelsi. fréttablaðið/AFP

Fjölskyldur meira en 250 palestínskra fanga tóku fagnandi á móti þeim eftir að Ísraelar höfðu sleppt þeim úr haldi í gær. Þessir 250 fangar eru þó aðeins lítið brot af þeim 9.200 Palestínumönnum sem sitja í ísraelskum fangelsum.



Ísraelsstjórn segist vilja með þessu sýna Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, og Fatah-hreyfingu hans, stuðning í þeirri von að koma megi raunverulegum friðarviðræðum af stað á ný.



Abbas sagði þetta aðeins fyrsta skrefið í því að fá fleiri fanga leysta úr haldi. „Starf okkar verður að halda áfram þangað til hver einasti fangi snýr aftur til síns heima,“ sagði Abbas í gær.



Salad Fayyad forsætisráðherra sagði sömuleiðis að Ísraelar yrðu að gera meira til að bæta andrúmsloftið: „Stefna ykkar er stefna smárra breytinga. Þið gerið smávegis hér, smávegis þar,“ sagði hann. „Ísrael er stórt og sterkt land. Ísrael getur leyft sér meiri dirfsku.“



Sumir fanganna gáfu í skyn að nú væri vopnuðum átökum við Ísrael lokið: „Við viljum senda þau skilaboð til heimsins að við viljum frið fyrir þjóðina okkar,“ sagði Majdi Abdullah, fyrrverandi meðlimur í al-Aksa skæruliðasveitunum, sem hefur setið í fimm ár í fangelsi Ísraela.



Aðrir fanganna voru hins vegar vígreifir og vildu ólmir leggja til atlögu við Hamas í hefndarskyni fyrir yfirtöku Gaza-svæðisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×