Erlent

Nýjar reglur um yfirheyrslur

George W. Bush undirritaði nýjar reglur um yfirheyrslur í gær.
George W. Bush undirritaði nýjar reglur um yfirheyrslur í gær. fréttablaðið/AP

George W. Bush Bandaríkjaforseti undirritaði í gær nýjar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna. Samkvæmt nýju reglunum er bannað að beita grimmilegum eða ómannúðlegum yfirheyrsluaðferðum, niðurlægja fanga eða misbjóða trú þeirra.



Bandaríkjamenn hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að beita harkalegum yfirheyrsluaðferðum á fanga sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum. Bush hefur hins vegar þráfaldlega neitað því að þessar umdeildu yfirheyrsluaðferðir geti talist pyntingar.



Hann vildi þó ekki útskýra nákvæmlega hvaða aðferðir væru nú bannaðar, né heldur hvað væri leyfilegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×