Erlent

Fær að halda embættinu

Baráttunni við forsetann lokið.
Baráttunni við forsetann lokið. fréttablaðið/AFP

Hæstiréttur Pakistans kvað í gær upp þann úrskurð að Pervez Musharraf forseti hefði ekki farið að lögum þegar hann rak Iftikhar Muhammad Chaudhry, forseta hæstaréttar, úr embætti. Jafnframt ógilti dómstóllinn málatilbúnað stjórnarinnar á hendur Chaudhry, sem sakaður hafði verið um að hafa gerst brotlegur í embætti.



Dómarar og stjórnarandstæðingar í Pakistan fögnuðu ákaft og sögðu þennan úrskurð hæstaréttar vera mikinn sigur fyrir lýðræðið í landinu. Dómsvaldið hafi þarna sýnt fram á sjálfstæði sitt gagnvart forsetanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×