Erlent

Bjargaði 2.500 gyðingabörnum

Pólska þingið heiðraði í gær 97 ára gamla konu, Irenu Sendler, fyrir að hafa bjargað 2.500 gyðingum meðan á helförinni stóð.

Sendler, sem tilheyrði pólskri neðanjarðarhreyfingu, stýrði hópi fólks sem smyglaði börnum gyðinga frá Varsjá og kom þeim fyrir hjá pólskum fjölskyldum, í klaustrum eða á munaðarleysingjahælum. Nöfn þeirra skrifaði hún á miða og gróf í jörðu svo hún gæti komið þeim í hendur foreldra sinna við stríðslok.

Sendler var handtekin af Þjóðverjum árið 1943 og þrátt fyrir ítrekaðar pyntingar neitaði hún að gefa upp nöfn barnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×