Erlent

Skátar borga skaðabætur

Skátafélag í Utah-ríki í Bandaríkjunum þarf að bæta tjón sem varð vegna illviðráðanlegs elds sem átti upptök sín á tjaldsvæði skáta. Í júní árið 2002 brunnu 5.750 hektarar lands og segja yfirvöld að upptök eldsins hafi verið á tjaldstæði sautján skáta á aldrinum tólf til fjórtán ára sem voru að vinna sér inn viðurkenningu fyrir að lifa af í óbyggðum. Tveir fimmtán ára leiðbeinendur voru með í för.

Ríkið höfðaði mál á hendur félaginu, sem féllst á að greiða sem svarar rúmlega 22 milljónum króna og gróðursetja níu þúsund trjáplöntur í sátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×