Enski boltinn

England skortir liðsanda

Elvar Geir Magnússon skrifar
Vantar liðsandann?
Vantar liðsandann?

Franz Beckenbauer telur að helsta vandamál enska landsliðsins sé skortur á liðsanda. Það sé helsta ástæðan fyrir því að liðið eigi á hættu að komast ekki á lokakeppni Evrópumótsins.

Beckenbauer horfði á England leika vináttulandsleik gegn Þýskalandi á Wembley í ágúst. „Þetta var eins og að horfa á skólalið. Þeir töluðust ekkert við á vellinum og það vantaði allan stuðning," sagði Beckenbauer en Þýskaland vann umræddan leik 2-1.

„Það kom mér rosalega á óvart að horfa upp á þetta. Það var ekkert líf í þessu liði. Það var allt annar andi í enska liðinu sem ég lék sjálfur gegn á HM 1966. Þá voru leikmenn alltaf að hvetja hvorn annan og liðsandinn var svo sannarlega til staðar," sagði Beckenbauer.

„Það væri mjög leiðinlegt fyrir Evrópumótið ef enska landsliðið kæmist ekki þangað. Það væri mikill missir," sagði Beckenbauer.

Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins, er alls ekki sammála Beckenbauer. „Þetta er hreint frábær hópur sem nær mjög vel saman. Hann er greinilega ekki að horfa á sama lið og ég horfi á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×