Erlent

Illir andar hraktir á brott

Bush fær óblíðar móttökur Frá mótmælum í Gvatemala.
Bush fær óblíðar móttökur Frá mótmælum í Gvatemala. MYND/AFP

Leiðtogar Maja- indíána í Gvatemala eru ekki ánægðir með fyrirhugaða heimsókn Bush Bandaríkjaforseta til landsins.

Bush er nú á vikuferðalagi um Suður-Ameríku í þeim tilgangi að liðka til í samskiptum við lönd í álfunni.

 „Það er hrein móðgun við okkur og menningu okkar að maður eins og Bush fái að ferðast um heilög landsvæði innfæddra,“ er haft eftir talsmanni þeirra. Ráðgera Majarnir að fá presta til að „hrekja burt illa anda“ eftir að Bush Bandaríkjaforseti hefur átt þar leið um. Heimsókn Bush hefur víðar mætt andstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×