Enski boltinn

Ronaldo: Vinnum deildina og Meistaradeildina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Christiano Ronaldo í kunnuglegri stellingu.
Christiano Ronaldo í kunnuglegri stellingu. Nordic Photos / Getty Images

Cristiano Ronaldo telur að Manchester United verji enska meistaratitil sinn og vinni þar að auki Meistaradeild Evrópu.

United hefur byrjað vel á leiktíðinni en liðið er í öðru sæti deildarinnar og hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í Meistaradeildinni. Ronaldo hefur skorað sex mörk það sem af er leiktíðinni.

„Ég hef trú á því að við vinnum þessar tvær deildir," sagði Ronaldo. „Við erum með liðið til þess. Við erum með leikmennina sem til þarf og við höfum trú á okkur sjálfum."

United hefur unnið síðustu átta leiki sína og hafa skorað fjögur mörk í fjórum leikjum í röð.

„Eins og er eru margir að skora mörk fyrir liðið og er það góðs viti. Síðustu þrjár vikur hafa verið stórkostlegar og við þurfum að halda áfram á sömu braut."

Á laugardag mætast toppliðin tvö í deildinni - Arsenal og Manchester United á Emirates-vellinum. „Það verður erfitt að mæta Arsenal. Liðið hefur verið að spila frábæra knattspyrnu. En þetta er gott tækifæri fyrir okkar til að sjá hvar við stöndum. Tímabilinu má líkja við maraþon og er mikilvægt að viðhalda stöðugleika."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×