Erlent

Verslanir tapa milljónum á dag

Kveikt hefur verið í bílum, rúður brotnar og skemmdarverk unnin í mótmælum undanfarinna daga.
Kveikt hefur verið í bílum, rúður brotnar og skemmdarverk unnin í mótmælum undanfarinna daga. MYND/AFP

Verslunareigendur á Norðurbrú hafa tapað allt að einni milljón króna á degi hverjum frá því að óeirðaástand skapaðist þar eftir að mótmæli vegna rýmingar Ungdómshússins fóru úr böndunum.

Fréttavefur Politiken hefur þetta eftir Johnny Beyer, formanni verslunarmannafélags Norðurbrúar, sem segir skýringuna fyrst og fremst vera skort á viðskiptavinum. „Ég hef heyrt um búðir sem hafa verið að selja 50 prósent minna en venjulega, en meðaltalið er í kringum þriðjungur af venjulegri veltu.“

Verslunareigendur hafa ekki enn gefið upp tjónskostnað vegna rúðna sem voru brotnar og annarra skemmdarverka. En það er aðeins brot af þeim kostnaði sem skortur á veltu veldur, að sögn Beyer, þar sem tryggingarnar nái ekki yfir það eins og skemmdir.

Verslunarmannafélagið áætlar að það geti tekið átta til fjórtán daga fyrir verslun á svæðinu að komast í samt lag, að því gefnu að ekki verði meira um ólæti.

Niðurrif Ungdómshússins hélt áfram í gær. Kveikt var í tveimur bílum sem fluttu brak og hafa fleiri fyrirtæki sem koma að verkinu tilkynnt um skemmdarverk á búnaði. Lögregla handtók nokkra mótmælendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×