Erlent

Meintur forsprakki hryðjuverka neitar sök

Á sakamannabekknum Það var þétt setinn bekkurinn í réttarsalnum í Madríd í gær.
Á sakamannabekknum Það var þétt setinn bekkurinn í réttarsalnum í Madríd í gær. MYND/AP

Egypti, sem sakaður er um að vera einn af höfuðpaurum lestarsprengjuárásanna í Madríd í mars 2004 sem bönuðu 191 manni og slösuðu 1.800, hélt því fram við yfirheyrslu í gær, á fyrsta degi réttarhalda yfir 29 sakborningum í málinu, að hann hefði þar hvergi komið nærri.

Rabei Osman tjáði dóminum að hann hefði „aldrei með nokkrum hætti tengst atburðunum sem áttu sér stað í Madríd,“ þrátt fyrir að ítalskir saksóknarar hafi hlerað símasamtal þar sem Osman stærir sig af því að árásirnar í Madríd hafi verið „hans verk“.

Ströng öryggisgæsla setti mark á upphaf réttarhaldsins í Madríd í gær. Sakborningar eru flestir frá Marokkó en aðrir arabar með ýmis ríkisföng, spænskt þar á meðal. Osman var fyrstur í vitnastúkuna, en hann svaraði einungis spurningum verjanda síns.

Tilræðin í Madríd eru mannskæðustu hryðjuverk sem rakin eru til öfgasinnaðra múslima sem framin hafa verið í Evrópu. Saksóknarar telja gerendur þá sem vildu hlýða kalli Osama bin Ladens að refsa skyldi þjóðum sem áttu aðild að innrásunum í Afganistan og Írak. Tíu sprengjur í bakpokum voru sprengdar með farsíma-fjarstýringu og voru í fjórum grenndarlestum troðfullum af fólki á leið til vinnu snemma að morgni 11. mars 2004.

Sjötíu voru handteknir í rannsókninni, en tuttugu og níu ákærðir, sjö þeirra meintir höfuðpaurar. Gert er ráð fyrir að réttarhaldið taki marga mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×