Erlent

Tíu milljónir til Síerra Leóne

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra styrkir verkefni Rauða krossins vegna baráttu gegn barnahermennsku í Síerra Leóne um rúmar tíu milljónir króna.

Framlagið fer að hluta til í að byggja endurhæfingarathvörf þar sem börn og ungmenni fá kennslu og sálræna aðstoð vegna afleiðinga borgarastyrjaldarinnar. Þetta segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Markmiðið með verkefninu er að hlúa að stríðshrjáðum börnum, veita þeim menntun, sálfræði-aðstoð og kennslu í iðngreinum til að gera þeim betur kleift að takast á við eðlilegt líf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×