Bandaríkin gera loftárásir á Sómalíu 10. janúar 2007 05:45 Gæsla við forsetabústaðinn í Mógadisjú. Sprengingar heyrðust í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í gær, daginn eftir að Bandaríkjaher hóf loftárásir á skæruliða í sunnanverðu landinu. MYND/AP
Bandaríkjaher hefur síðan á mánudag að minnsta kosti þrisvar sinnum gert loftárásir á Sómalíu. Árásirnar hafa orðið fjölda manns að bana, þar á meðal tugum óbreyttra borgara að því er vitni fullyrða. Árásunum er beint gegn skæruliðum íslamista sem voru á flótta eftir að her bráðabirgðastjórnar landsins hrakti þá frá höfuðborginni Mógadisjú með dyggri aðstoð frá Eþíópíuher. Bandaríkjamenn telja að meðal skæruliðanna hafi verið liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al-Kaída, þar á meðal menn sem grunaðir eru um að hafa staðið að hryðjuverkaárásum á sendiráð Bandaríkjanna í Kenía og Tansaníu árið 1998 Bandarísk herskip hafa verið út af ströndum Sómalíu undanfarið í þeim tilgangi að hafa uppi á hinum grunuðu, sem talið var að ætluðu að reyna að komast út úr landinu. Abdullahi Yusuf, forseti bráðabirgðastjórnarinnar, sagði fréttamönnum í gær að Bandaríkin hafi „rétt til þess að varpa sprengjum á grunaða hryðjuverkamenn sem réðust á sendiráð þeirra í Kenía og Tansaníu“. Einnig sagði Hussein Aideed forsætisráðherra að Bandaríkin hefðu „fullan stuðning okkar til árásanna“. Í höfuðborginni Mógadisjú sögðu þó aðrir að árásirnar myndu auka enn á andúð landsmanna gagnvart Bandaríkjunum. Íbúar Sómalíu eru að stórum meirihluta múslímar og hafa engan veginn verið sáttir við að herlið frá Eþíópíu hafi komið til að aðstoða bráðabirgðastjórnina, enda eru Eþíópíumenn flestir kristnir og hafa tvisvar átt í harðvítugu stríði við Sómalíu, síðast árið 1977. Loftárásir Bandaríkjanna beindust meðal annars að eyjunni Badmado, sem er skammt frá bækistöðvum íslamísku skæruliðanna í Ras Kamboni sunnan til í landinu, ekki langt frá landamærum Kenía. Bandaríkjamenn telja að menn tengdir Al Kaída hafi rekið þjálfunarbúðir í Ras Kamboni og þangað hafi liðsmenn Al Kaída komið. Þangað á líka Fazul Abdullah Mohammad, maðurinn sem talið er að hafi skipulagt árásirnar á sendiráðin 1998, að hafa flúið. Starfhæf ríkisstjórn hefur varla starfað í Sómalíu frá árinu 1991, þótt þrettán sinnum hafi verið reynt að mynda stjórn þar síðustu sex árin. Bráðabirgðastjórnin sem nú er við völd var stofnuð árið 2004 með stuðningi Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent Fleiri fréttir Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Sjá meira