Erlent

Forseti Íraks fastur í Bagdad

Talabani, forseti Íraks, situr þarna fyrir miðju á ríkisstjórnarfundi. Hann kemst ekki spönn frá rassi frekar en aðrir Bagdad-búar.
Talabani, forseti Íraks, situr þarna fyrir miðju á ríkisstjórnarfundi. Hann kemst ekki spönn frá rassi frekar en aðrir Bagdad-búar. MYND/AP

Leiðtogafundur forseta Írans og Íraks frestast í það minnsta til morguns, vegna útgöngubanns í Bagdad. Flugvöllurinn er lokaður, sem hamlar för Jalals Talabanis, forseta Íraks. Útgöngubannið gildir til klukkan 6 í fyrramálið að íslenskum tíma en það tók gildi eftir óvenju miklar árásir á Sadr-hverfið í Bagdad á fimmtudag.

Forsetarnir ætluðu að hittast í gær og hafði forseta Sýrlands einnig verið boðið til fundarins. Aðalumræðuefnið verður hlutverk Írans í að lægja öldurnar í grannlandinu Írak og hvernig best megi tryggja stöðugleikann í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×