Erlent

Ræðst í dag hvort Ekvador fellur til vinstri

Seinni umferð forsetakosninga í Ekvador er í dag og ræðst þá hvort landið blandast í hóp þeirra ríkja rómönsku Ameríku sem hafa hallast til vinstri í kosningum síðustu misseri. Slagurinn stendur á milli auðmannsins Noboa sem erfði eitt stærsta bananafyrirtæki heims af föður sínum og vinstri mannsins Correa sem hefur lofað félagslegum umbótum og riftun á viðskiptalegum- og hernaðarlegum tenglsum við Bandaríkin.

Kosningabaráttan hefur verið óvægin og hörð en einnig blandin leikrænum pólitískum úrspilum. Þannig hefur Noboa fallið á kné í kosningabaráttunni með biblíu í hönd og fullyrt að hann sé útsendur af drottni almáttugum til að berjast gegn árum kommúnismans í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×