Erlent

Síðasta líkið fundið í pólskri námu, 23 látnir

Aðstandendur syrgja sína nánustu.
Aðstandendur syrgja sína nánustu. MYND/AP

Tuttugasta og þriðja og síðasta líkið fannst í morgun í pólskri kolanámu þar sem metangassprenging varð í fyrradag. Talið er að mennirnir hafi allir látist samstundis við sprenginguna. Björgunarmenn þurftu frá að hverfa á tímabili í nótt þar sem gasmengun óx og hitinn náði allt að 40 gráðum niðri í námunni.

Þeir grófu sig í gegnum 500 metra af grjóthruni sem lokuðu göngunum, þannig að ofan á erfiðar aðstæður bættist erfiðisvinna.

Fjölskyldur og aðrir aðstandendur héldu á logandi kertum fyrir utan námusvæðið og messa var haldin í gærkvöldi fyrir þá sem vildu minnast ástvina sinna eða biðja fyrir að þeir myndu finnast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×