Erlent

Reyna sveigjanleika í Norður-Kóreu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna MYND/AP

Bandaríkjamenn munu hugsanlega reyna að vera sveigjanlegir í næstu viku þegar kemur að sexhliða viðræðum við Norður-Kóreumenn. Þetta sagði Condoleezza Rice í dag í viðtali við Reuters og bætti við að fundurinn í næstu viku væri aðeins hluti af lengra viðræðuferli og ekki megi gefast upp þó á móti blási á fyrsta fundi.

Hún staðfesti hins vegar að viðskiptaþvingunum á hendur Norður-Kóreumönnum yrði ekki aflétt þó að vel gengi í viðræðunum. Sumir stjórnmálaskýrendur eru smeykir um að Bush forseti muni ekki reynast eins sveigjanlegur og ekki nógu sannfærandi til að fá Norður-Kóreumenn til að hætta við kjarnavopnaáætlun sína. Harðlínumenn í garð kommúnistaríkisins óttast hins vegar að Bush sýni of mikla undanlátssemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×