Erlent

Lyfin láku úr æðunum

Angel Diaz, fanginn sem var 34 mínútur í dauðateygjunum eftir mistök í aftökunni.
Angel Diaz, fanginn sem var 34 mínútur í dauðateygjunum eftir mistök í aftökunni. MYND/AP

Ónákvæmni í stungu sprautunnar leiddi til rúmlega hálftíma langs dauðastríðs dauðadæmds fanga. Niðurstöður krufningar leiddu í ljós að sprautunálinni var stungið í gegnum æðarnar í bæði skiptin sem maðurinn var sprautaður og þannig láku lyfin út fyrir æðarnar. Flestir deyja á örfáum mínútum eftir slíka sprautu

Flórídaríki stöðvaði allar aftökur um óákveðinn tíma eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir.

Hæstaréttardómari í fylkinu sagði í kvöld að löggjöfin um það að dauðarefsingum skuli framfylgt með þessum hætti sé meingölluð og standist ekki stjórnarskrá. Hann sagði hins vegar að ekki þyrfti endilega að hætta við sprauturnar, löggjöfina mætti lagfæra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×