Erlent

Rice safnar fyrir Palestínu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur reynt að stuðla að friði í Miðausturlöndum.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur reynt að stuðla að friði í Miðausturlöndum. MYND/AP

Condoleezza Rice ætlar að biðja öldungadeild Bandaríkjaþings um tugi milljóna Bandaríkjadala til handa Palestínumönnum til að hjálpa ríkisfjárhagnum þar á réttan kjöl. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas, var í gær meinað að flytja heim með sér tæplega tvo og hálfan milljarð íslenskra króna í fjárstuðning til heimastjórnarinnar.

Við munum biðja um fjármagn til að styðja við öryggissveitir (Abbas forseta) og ég held að við getum fengið þann stuðning," sagði Rice í viðtali við Reuters og bætti því við að aðstoðin gæti numið tugum milljóna Bandaríkjadala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×