Erlent

Dæmd til dauða fyrir að smita börn af HIV

Fimm búlgarskir hjúkrunarfræðingar og einn palestínskur læknir hafa verið dæmdir til dauða fyrir líbískum dómstóli fyrir að hafa viljandi smitað hundruð barna af HIV-veirunni. Brotin áttu sér stað undir síðustu aldamót. Alls er talið að 426 líbísk börn hafi smitast af HIV-veirunni fyrir tilstilli hjúkrunarliðsins.

Þeir sem til málsins þekkja segja úrskurð dómaranna ekki koma á óvart. Sumir vilja meina að ekki hafi verið réttargögn fyrir hendi til að dæma á þennan veg en pólitískur þrýstingur hafi ráðið ferðinni. Hjúkrunarfræðingarnir og læknirinn hyggjast áfrýja dómnum.

Stjórnvöld í Búlgaríu hafa fordæmt dauðadóminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×