Erlent

Annar maður handtekinn vegna vændiskonumorða

Líkin fundust á víðavangi nærri bænum Ipswich.
Líkin fundust á víðavangi nærri bænum Ipswich. MYND/AP

Breska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna morðanna á fimm vændiskonum í og við bæinn Ipswich á Suðaustur-Englandi. 37 ára karlmaður var handtekinn í gærmorgun, grunaður um að hafa framið morðin. Lögregla telur óyggjandi að morðin tengist, enda nálíkar aðferðir og öll framin á innan við tveimur vikum.

Lögregla gefur ekki upp neinar nánari upplýsingar um manninn eða hvernig talið er að hann tengist málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×