Erlent

Maður handtekinn vegna vændiskonumorða

37 ára karlmaður var handtekinn í morgun vegna morðanna á fimm vændiskonum á Suðaustur-Englandi. Lögreglan segir ekkert um nafn mannsins eða hvernig hann tengist vændiskonunum. Breskir fjölmiðlar hafa hins vegar þegar nafngreint manninn og segja hann starfsmann stórmarkaðar í Ipswich-borg á Suðaustur-Englandi.

Fimm kvenmannslík hafa fundist nakin á víðavangi á ellefu dögum, frá öðrum desember. Konurnar störfuðu allar við vændi eða annan kynlífsiðnað. Ein þeirra var kyrkt en ekki hefur verið upplýst hvernig hinar voru drepnar. Morðin hafa vakið mikinn óhug í Englandi, enda minnir málið á einn alræmdasta raðmorðingja Englands, Kobba kviðristu, sem er talinn hafa myrt fimm vændiskonur árið 1888. Leitin að morðingjanum er eitt viðamesta og óhugnanlegasta lögreglumál síðustu ára í Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×