Erlent

Norður-Kóreumenn með strangar kröfur

Norður-Kóreumenn krefjast þess að öllum viðskiptaþvingunum verði aflétt áður en rætt verði um kjarnorkuafvopnun landsins. Að auki vilja þeir fá léttvatnskjarnakljúf í staðinn fyrir kjarnorkuver sín. Þessar kröfur setti Norður-Kórea fram í upphafi viðræðna sex landa um áætlun til að afvopna kommúnistaríkið.

Stjórnmálafræðingar segja þetta vera leiktækni hjá Norður-Kóreumönnum að setja fram strangar kröfur í upphafi til að skapa sér sterka stöðu í samningaviðræðunum.

Sameinuðu þjóðirnar beittu viðskiptaþvingunum á hendur Norður-Kóreumönnum eftir að þeir sprengdu kjarnorkusprengju í októberbyrjun. Að auki settu Bandaríkjamenn sérstakar viðskiptahindranir á landið haustið 2005, þar sem Norður-Kóreumenn voru ásakaðir um peningaþvætti og peningafölsun.

Léttvatnskljúfar eru nefndir svo til aðgreiningar frá þungvatnskjarnakljúfum, létt vatn er venjulegt vatn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×