Erlent

Dæmdur fyrir módelmorð

Manu Sharma, sonur áhrifamikils félaga í stjórnarflokki Indlands var í dag dæmdur fyrir að hafa myrt fyrirsætu árið 1999. Málið hefur fengið mikla umfjöllun í landinu. Sharma var sýknaður fyrr á þessu ári, sem vakti víðtæk mótmæli í landinu, þar sem það þótti sanna að hinir ríku og valdamiklu þyrftu ekki að gegna lögum sem gilda í landinu.

Jessica Lall var 34 ára þegar Sharma skaut hana til bana. Hún var að afgreiða á bar í einkasamkvæmi sem hann var í og neitaði að gefa honum í glas eftir að barinn lokaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×