Erlent

Þrír í gæsluvarðhaldi eftir mótmælin á Norðurbrú

Mótmælendur voru vígalegir, með borða sem stóð á Ungdomshuset blir, eða Æskulýðshúsið verður áfram.
Mótmælendur voru vígalegir, með borða sem stóð á Ungdomshuset blir, eða Æskulýðshúsið verður áfram. MYND/AP

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi eftir mótmælin á Norðurbrú í Kaupmannahöfn á laugardagskvöldið. Af þeim eru tveir erlendir ríkisborgarar og einn Dani. Alls voru 273 fluttir í fangageymslur á laugardagskvöld eftir það sem lögreglan kallar stærstu mótmæli í áratugi.

Þrjátíu og þriggja ára Dani situr í gæsluvarðhaldi enda þykir sýnt að hann myndi brjóta af sér aftur ef til frekari mótmæla kæmu. Ekki þótti þó sannað að hann hefði tekið þátt í ofbeldi eða íkveikjum á annan hátt en þann að hann tæmdi úr ruslafötu á bál sem var við það að deyja út, til þess að glæða eldinn.

Auk Danans sæta 27 ára Spánverji eða Ítali og 25 ára vinkona hans frá Portúgal gæsluvarðhaldi til 12. janúar á næsta ári. Hann mun hafa skotið að lögreglubíl og kastað múrsteinum að útibúi Danske Bank. Þegar hann var handtekinn kom vinkona hans hlaupandi þar að. Hún grýtti lögregluþjónana og þegar þeir gripu hana sjálfa reyndi hún, að sögn lögregluþjónanna að sparka í klofið á þeim og bíta þá í hnéð.

Maðurinn segist hafa verið í fríi hjá kunningjum sínum í Danmörku. Konan segist hins vegar vera í Kaupmannahöfn gagngert til þess að safna efni um ungdómshúsið, sem styrinn stendur um, fyrir háskólarannsókn sem hún vinnur að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×