Erlent

Segja sig úr bandarísku Biskupakirkjunni

Fulltrúar sóknanna sem sögðu sig úr bandarísku Biskupakirkjunni.
Fulltrúar sóknanna sem sögðu sig úr bandarísku Biskupakirkjunni. MYND/AP

Tvær stórar sóknir bandarísku Biskupakirkjunnar samþykktu í gær með yfirgnæfandi meirihluta að segja sig úr Biskupakirkjunni og ganga til liðs við íhaldssama félaga sína sem ætla að mynda útibú frá ensku Biskupakirkjunni í Bandaíkjunum. Sóknarbörnin munu þá ganga undir yfirvald erkibiskupsins Peters Akinola, frá Nígeríu, sem hefur kallað samþykki samkynhneigðra sambanda "sataníska árás" á kirkjuna.

Saman hafa sóknirnar tvær aðeins um fjögur þúsund sóknarbörn, en mótmæli íhaldssamra hafa engu að síður hlotið mikla athygli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×