Erlent

Norður-Kórea aftur að samningaborðinu

Samninganefnd sex ríkja um kjarnavopnaeign Norður-Kóreumanna kom saman í morgun í fyrsta skipti í rúmt ár. Þar kemur í ljós hvort kommúnistastjórn Norður-Kóreu er til í að semja um afvopnun gegn því að viðskiptaþvingunum Sameinuðu þjóðanna verði aflétt.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu samþykktu í september 2005 að hætta við kjarnorkuáætlun sína gegn því að fá aðstoð í efnahags- og varnarmálum en eftir kjarnorkutilraun landsins í októberbyrjun var ljóst að það samkomulag væri í upplausn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×