Erlent

Hamas og Fatah semja um frið

Mahmoud Abbas (t.h.)og Ismail Haniyeh. Myndin er frá fundi þeirra þegar þeir ræddu um myndun þjóðstjórnar. Þær viðræður eiga nú að halda áfram.
Mahmoud Abbas (t.h.)og Ismail Haniyeh. Myndin er frá fundi þeirra þegar þeir ræddu um myndun þjóðstjórnar. Þær viðræður eiga nú að halda áfram. MYND/AP

Hamas- og Fatah-hreyfingarnar í Palestínu sögðust í gærkvöldi hafa samið um vopnahlé. Enn mátti samt heyra skothríð á Gaza-ströndinni í morgun og ekki víst hvenær eða hvort vopnahléð myndi taka gildi. Þetta kemur degi eftir að allt virtist stefna í borgarastríð milli andstæðu hreyfinganna tveggja, þar sem Hamas varpaði sprengjum á skrifstofur Abbas forseta og Fatah réðist inn í tvö ráðuneyti.

Fulltrúar hreyfinganna tveggja munu ætla að funda í vikunni og reyna að koma viðræðum um myndun þjóðstjórnar aftur af stað. Komið verður í veg fyrir vopnuð átök liðsmanna, öryggissveitir fá að snúa aftur í höfuðstöðvar sínar, gíslar verða látnir lausir og endir bundinn á umsátur um ráðuneyti heimastjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×