Erlent

Geimæði í Svíþjóð

Mikið geimæði hefur gripið um sig í Svíþjóð af því tilefni að fyrsti Svíinn er nú úti í geimnum. Hann fór með geimferjunni Discovery upp í alþjóðlegu geimstöðina og hefur upplýst að hann hafi tekið með sér disk með ABBA. Karl Gústaf Svíakonungur segist vonast til að hann hafi líka tekið með sér sænska fánann. Geimfarinn heitir Fuglesang, að eftirnafni, sem útleggst fuglasöngur á íslensku, sem mörgum Svíum þykir eiga einkar vel við þennan háfleyga landa þeirra.-



Fleiri fréttir

Sjá meira


×